Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. janúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bayer Leverkusen á eftir kantmanni Leicester
Gray er líklega á förum frá Leicester.
Gray er líklega á förum frá Leicester.
Mynd: Getty Images
Þýska úrvalsdeildarfélagið Bayer Leverkusen er í viðræðum við Leicester um að fá kantmanninn Demarai Gray.

Gray er ekki efstur í goggunarröðinni hjá Brendan Rodgers, stjóra Leicester, og gæti hann verið á förum núna í janúar. Samningur hans rennur út næsta sumar.

Að sögn Sky Sports er að Leverkusen að ræða við Leicester en Crystal Palace og Marseilla hafa einnig sýnt honum áhuga.

Leverkusen telur að Gray geti haft svipuð áhrif í Þýskalandi eins og aðrir ungir enskir leikmenn. Þar má nefna Jadon Sancho og Jude Bellingham sem hafa báðir gert flotta hluti með Borussia Dortmund. Gray er 24 ára gamall.

Bayer Leverkusen er í toppbaráttu í Þýskalandi og er þessa stundina í þriðja sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner