Fotbolti.net
27.01.25 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Postecoglou heldur í starfið

Ange Postecoglou.

Ange Postecoglou.

Canon

Mynd: Getty Images

Ange Postecoglou fær að halda starfi sínu hjá Tottenham þrátt fyrir að liðið sé núna í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Það hefur gengið hörmulega hjá Tottenham að undanförnu en liðið tapaði gegn Leicester á heimavelli í gær.
Stuðningsmenn Tottenham sungu út með Levy
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Tottenham sungu út með Levy

Tottenham hefur unnið aðeins einn af síðustu ellefu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Fyrir félag er eins stórt og Spurs, þá er það ekki boðlegt.

Liðið er sem stendur nær fallsvæðinu en tíunda sæti.

Tottenham ætlar sem stendur að styðja við bakið á Postecoglou þar sem liðið er í meiðslavandræðum. Félagið vonast til að kaupa að minnsta kosti einn leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokar. Það er Football London sem segir frá þessu.

Daniel Levy, stjórnarformaður Spurs, hefur verið harðlega gagnrýndur og hafa stuðningsmenn félagsins hvatt hann til að segja af sér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.