Fjórir leikmenn úr aðalliði ítalska úrvalsdeildarfélagsins ákváðu að gleðja stuðningsmenn félagsins á þessum erfiðu tímum.
Andrea Poli, Angelo Da Costa, Riccardo Orsolini og Marco Di Vaio hringdu í nokkra stuðningsmenn Bologna sem búa einir. Kom þetta stuðningsmönnunum skemmtilega á óvart.
Andrea Poli, Angelo Da Costa, Riccardo Orsolini og Marco Di Vaio hringdu í nokkra stuðningsmenn Bologna sem búa einir. Kom þetta stuðningsmönnunum skemmtilega á óvart.
Ítalía er það land sem hefur komið verst út úr kórónuveirunni. Rúmlega 80 þúsund manns í landinu hafa greinst með veiruna og rúmlega 8200 látist.
Á þessum tímum eru margir í sóttkví eða í einangrun vegna veirunnar og getur það orðið til þess að fólk verður einmana.
Virkilega vel gert hjá Bologna, en Andri Fannar Baldursson, sá efnilegi leikmaður, er á mála hjá ítalska félaginu.
Athugasemdir