Fotbolti.net
27.05.18 - 20:18
Kristófer Jónsson

Túfa: Eigum að vera með fleiri stig

Auglýsing
Túfa er ekki ánægður með stigasöfnun liðsins.

Túfa er ekki ánægður með stigasöfnun liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA, var að vonum súr eftir 2-0 tap sinna manna gegn KR á Alvogenvellinum í dag.

<i>„Það eru alltaf vonbrigði að tapa og sérstaklega fyrir mann eins og mig sem að er ekki vanur að tapa svona mikið eins og núna. Mér fannst leikurinn jafn allan tímann sem að hefði getað dottið báðum megin.\"</i> sagði Túfa eftir leikinn.
Varnarleikur KR var gríðarlega þéttur í leiknum og áttu sóknarmenn KA í stökustu vandræðum með að skapa færi.

„Við erum að koma okkur í rosalega góðar stöður til að skapa hættuleg færi en síðan vantar aðeins uppá úrslitasendingu. KR sýndi meiri gæði inní teignum og það skilaði þeim sigri í dag.\"

KA hefur ekki byrjað jafn vel eins og búist var af þeim en þeir eru nú með fimm stig eftir sex umferðir og sitja í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar.

„Ég er mjög ósáttur með þessa byrjun og að við eigum að vera með fleiri stig. En það eina sem við getum gert er að halda áfram og leggja meira á okkur. Við erum með nógu gott lið til þess að snúa þessu við.\" sagði Túfa að lokum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.