banner
   fös 27. maí 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dembele sagður vera á leið til PSG
Mynd: EPA

Samningur Ousmane Dembele leikmanns Barcelona rennur út í sumar en hann hefur verið í viðræðum við félagið um framlengingu í langan tíma.


PSG hefur einnig haft samband við leikmanninn og vill fá hann í sínar raðir. Frakkinn Kylian Mbappe gerði nýjan samning við félagið á dögunum og var sagður vilja fá landa sinn til félagsins.

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Dembele hafi neitað lokatilboði Barcelona og muni semja við franska liðið.

Dembele hefur verið hjá Barcelona frá 2017 þegar hann kom frá Dortmund en hann lék stórt hlutverk í fyrra. Hann var út í kuldanum meiri hlutann af ný afstaðnu tímabili þar sem hann neitaði að gera nýjan samning við félagið.


Athugasemdir
banner
banner