Mikael Neville Anderson skoraði jöfnunarmark Íslands í 1-1 jafnteflinu gegn Albaníu í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld en það kom seint í uppbótartíma.
Eftir hetjulega baráttu kom konfektsending frá Þóri Jóhanni Helgasyni inn í teiginn sem skoppaði á fjærstöngina á Mikael sem kom honum í netið.
Þórir notaði skemmtilega tækni við sendinguna, sem var eflaust ætluð Mikael Agli Ellertssyni, en boltinn skoppaði í gegnum hann og á nafna hans, Mikael Neville og var ljúft að sjá boltann í netinu.
Hægt er að sjá sendinguna og markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið
Athugasemdir