Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. október 2021 15:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dagur Dan í Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Dan Þórhallsson mun skrifa undir hjá Breiðabliki á eftir samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net. Félagaskiptin verða tilkynnt á næstu dögum.

Dagur kemur til Breiðabliks frá Mjöndalen en hann lék á láni frá norska félaginu hjá Fylki í sumar.

Dagur spilaði tuttugu leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar og skoraði eitt mark. Dagur er 21 árs gamall sóknarmaður sem uppalinn er hjá Haukum og Fylki.

Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni greindi frá því í gær að Dagur væri á leið í Breiðablik.

Fréttin var uppfærð 16:55
Athugasemdir
banner
banner
banner