Sædís Rún: Virkilega stolt og þakklát fyrir traustið

Sædís Rún Heiðarsdóttir byrjaði sinn fyrsta leik í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sædís Rún Heiðarsdóttir byrjaði sinn fyrsta leik í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tók á móti Danmörku í þriðju umferð í Þjóðadeild kvenna. Íslenska liðið sýndi flotta frammistöðu í leiknum en urðu þó að sætta sig við svekkjandi tap fyrir Dönum.
Ísland er með þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðir Þjóðadeildarinnar, á meðan Danmörk trónir á toppi riðilsins með fullt hús stiga - eða níu stig.
„Virkilega súrt. Mér fannst þetta jafn leikur og mér fannst við halda ágætlega í boltann en svona er fótboltinn." Sagði Sædís Rún Heiðarsdóttir leikmaður Íslenska liðsins eftir leikinn í kvöld.
„Frammistaðan í heild sinni var kannski bara fín. Eigum kannski eftir að fara aðeins betur yfir leikinn og rýna í þetta en jafn leikur yfir höfuð og hefði getað dottið sitthvoru meginn og því miður datt það þeirra meginn."
„Við erum stöðugt að bæta okkur og ætlum okkur alltaf að gera betur. Mér fannst við ná að halda vel í boltann í dag og klárlega eitthvað sem við ætlum að byggja á."
Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Sædísar Rúnar fyrir Íslenska landsliðið í kvöld.
„Er virkilega stolt og þakklát fyrir traustið."
Hvenær fékk hún þær fréttir að hún ætti að byrja þennan leik?
„Bara í gær þegar að liðið var tilkynnt."
Nánar er rætt við Sædísi Rún Heiðarsdóttur í spilaranum hér fyrir ofan.




