Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 27. nóvember 2021 09:50
Fótbolti.net
Á X977 í dag: Rangnick umræða og Björn Berg gestur
Mynd: Íslenski boltinn
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á sínum stað á X977 milli 12 og 14 í dag, eins og alla laugardaga. Elvar Geir og Tómas Þór standa vaktina í fiskabúrinu.

Í þættinum verður farið yfir fréttir vikunnar, þar á meðal komu Ralf Rangnick sem er að taka við sem bráðabirgðastjóri Manchester United. Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður og sérfræðingur um United, verður á línunni.

Gestur þáttarins er Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka. Hann var að gefa út bókina Peningar þar sem sérstakur kafli er um fótbolta.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner