Fotbolti.net
28.01.21 - 11:10
Magnús Már Einarsson

Martial og Tuanzebe urðu fyrir kynþáttafordómum

Anthony Martial

Anthony Martial

Canon

Mynd: Getty Images

Anthony Martial og Axel Tuanzebe, leikmenn Manchester United, urðu báðir fyrir kynþáttafordómum á samfélagsmiðlum eftir tap liðsins gegn Sheffield United í gærkvöldi.

Martial spilaði allan leikinn í gær en Tuanzebe var tekinn af velli á 82. mínútu í fyrsta byrjunarliðsleik sínum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Eftir leikinn urðu leikmennirnir fyrir kynþáttafordómum á samfélagsmiðlum sínum þar sem ljótar athugasemdir voru skrifaðar við myndir af þeim.

Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, er á meðal þeirra sem hafa lýst yfir reiði sinni yfir póstunum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.