Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 28. janúar 2022 15:05
Elvar Geir Magnússon
Traore í læknisskoðun hjá Barcelona - Gluggi Tottenham að breytast í martröð
Adama Traore.
Adama Traore.
Mynd: Getty Images
Adama Traore er í læknisskoðun hjá Barcelona en hann er á leið til félagsins á lánssamningi frá Wolves út tímabilið. Traore kom í gegnum akademíu Barcelona á sínum tíma en hefur spilað á Englandi síðan 2015.

Hann er á heimleið en hann ólst upp í nágrenni Nývangs, heimavallar Barcelona. Hann mun nú klára tímabilið með Barcelona sem er með klásúlu um möguleika á kaupum. Sú ákvörðun mun liggja hjá Barcelona.

Tottenham vildi fá Traore en janúarglugginn hefur ekki spilast vel hjá félaginu. Antonio Conte lagði fram óskalista en meðal manna á honum voru Traore og einnig Luis Díaz sem Liverpool er nú að krækja í.

Conte hefur talað um nauðsyn þess að styrkja leikmannahóp Tottenham en Daniel Levy og hans menn eru ekki að ná að krækja í þá leikmenn sem Conte vill fá.


Athugasemdir
banner
banner
banner