Fotbolti.net
28.01.25 - 15:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Félög í Bestu hafa áhuga á Þorsteini Aroni

Félög í Bestu hafa áhuga á Þorsteini Aroni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það hefur verið fjallað um áhuga HK á Þorsteini Aroni Antonssyni í vetur en HK hefur að minnsta kosti í tvígang reynt að fá miðvörðinn frá Val í vetur. Þorsteinn Aron lék með HK á láni síðasta sumar og var ánægja með hann í Kórnum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa félög í efstu deild áhuga á miðverðinum efnilega. Þar á meðal eru FH og ÍA en Fótbolti.net hefur heyrt af því að fleiri félög hafi augastað á kappanum.
Leifur vill sjá HK klára kaupin - „Yrði gríðarlega mikill fengur"
TENGT EFNI

Leifur vill sjá HK klára kaupin - „Yrði gríðarlega mikill fengur"

Þorsteinn Aron er fæddur árið 2004 og lék með U21 landsliðinu gegn Póllandi í nóvember. Hann er uppalinn á Selfossi, var á sínum tíma á mála hjá Fulham á Englandi og hefur einnig verið hjá Stjörnunni. Fyrir tímabilið 2024 yfirgaf hann Selfoss og samdi við Val.

Hann skoraði þrjú mörk í 22 leikum á síðustu leiktíð en öll mörkin komu í eins marks sigrum á Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.