Fotbolti.net
28.02.20 - 23:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hlé í um 15 mínútur á Würth-vellinum eftir mjög ljótt samstuð

Halldór Smári Sigurðsson.

Halldór Smári Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Smári Sigurðsson, leikmaður Víkings, og Arnór Gauti Ragnarsson, sóknarmaður Fylkis, voru báðir fluttir á brott með sjúkrabíl eftir samstuð í leik í Lengjubikarnum í kvöld.

Halldór Smári kom töluvert verr út úr samstuðinu og rotaðist hann.
Sagt er frá málinu á 433.is í kvöld og þar er vitnað í áhorfanda á vellinum sem óttaðist það versta. „Leikurinn var stöðvaður í um fimmtán mínútur. Um tíma óttaðist ég hreinlega um líf Halldórs," sagði áhorfandinn við 433.

Báðir leikmenn eru á batavegi að sögn 433 en líklegt er að þeir taki sér eitthvað frí þar sem höggið var mjög þungt.

Víkingur vann leikinn 2-0 og er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í Riðli 2 í Lengjubikar karla. Fylkir er með fjögur stig eftir þrjá leiki.

Hér að neðan má sjá myndir sem Raggi Óla tók á vettvangi í kvöld.

Hlé í um 15 mínútur á Würth-vellinum eftir mjög ljótt samstuð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Hlé í um 15 mínútur á Würth-vellinum eftir mjög ljótt samstuð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.