Fotbolti.net
28.02.21 - 21:56
Aksentije Milisic

Spánn: Atletico sökkti Gula kafbátnum

Leikmenn Atletico fagna í kvöld.

Leikmenn Atletico fagna í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Fjórir leikir fóru fram í La Liga deildinni á Spáni í dag en spilað var í 25. umferðinni.
Barcelona vann Sevilla í gær og setti því smá pressu á Atletico Madrid sem spilaði gegn Villareal í kvöld.

Atletico sótti hins vegar mjög sterkan útisigur gegn Gula kafbátnum. Alfonso Pedraza skoraði sjálfsmark á 27. mínútu og því leiddi Atletico leikinn þegar flautað var til leikhlés.

Portúgalski snillingurinn Joao Felix kom gestunum í tveggja marka forystu á 69. mínútu og þar við sat. Mjög mikilvægur sigur hjá Atletico, sem er nú með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar og á einn leik til góða.

Fyrr í dag gerðu Celta Vigo og Real Valladolid 1-1 jafntefli og þá vann Real Betis góðan útisigur á Cadiz. Betis er nú í sjötta sæti deildarinnar. Granada, sem er í baráttunni um Evrópudeildarsæti, vann heimasigur á Elche.

Í B-deildinni var Diego Jóhannesson ónotaður varamaður þegar Real Oviedo vann 1-0 sigur á Zaragoza. Oviedo er í 11. sæti deildarinnar.

Celta 1 - 1 Valladolid
0-1 Fabian Orellana ('70 )
1-1 Jeison Murillo ('90 )

Cadiz 0 - 1 Betis
0-1 Juanmi ('84 )

Granada CF 2 - 1 Elche
1-0 Domingos Quina ('31 )
1-1 Lucas Boye ('40 )
2-1 Antonio Puertas ('79 )

Villarreal 0 - 2 Atletico Madrid
0-1 Alfonso Pedraza ('25 , sjálfsmark)
0-2 Joao Felix ('69 )
Spánn: Atletico sökkti Gula kafbátnum
Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.