Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. maí 2022 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Odriozola ætlar að berjast um byrjunarliðssæti hjá Real
Mynd: Getty Images

Spænski bakvörðurinn Alvaro Odriozola fer aftur til Real Madrid eftir að hafa verið á láni hjá Fiorentina síðasta ár.


Fiorentina hafði áhuga á að festa kaup á Odriozola en varnarmaðurinn vildi snúa aftur til Spánar og berjast um byrjunarliðssæti hjá Real Madrid.

Odriozola er 26 ára gamall og á 43 leiki að baki fyrir Real Madrid. Þar mun hann berjast við samlanda sína Dani Carvajal og Lucas Vazquez um byrjunarliðssæti.

„Ég verð ekki áfram hjá Fiorentina. Ég naut dvalar minnar hjá félaginu en ég er núna tilbúinn fyrir Real Madrid. Markmiðið mitt er að vera partur af leikmannahópi Real Madrid á næstu leiktíð," sagði Carvajal í útvarpsviðtali áOnda Cero.

Odriozola er samningsbundinn Real Madrid til 2024.


Athugasemdir
banner
banner