Fotbolti.net
28.07.21 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Hazard ekki í standi þegar hann mætti úr sumarfríi

Eden Hazard var testaður hjá Real Madrid.

Eden Hazard var testaður hjá Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Eden Hazard er mættur aftur til Real Madrid eftir sumarfrí en spænskir fjölmiðlar segja að hann sé ekki í formi.

Hazard var mikið á meiðslalistanum á síðasta tímabili og missti af alls 33 leikjum en hann var keyptur til Real Madrid á metfé 2019.
Margir telja að ástæðan fyrir meiðslavandræðum Hazard megi rekja til þess hvernig hann hugsar um sig.

Marca segir að Hazard hafi verið settur í test til að skoða líkamlegt ástand þegar hann mætti til Real Madrid til að gera sig kláran í undirbúningstímabilið.

Niðurstöðurnar voru víst mikil vonbrigði og sagt að standið á honum hafi verið betra þegar hann hélt á EM með Belgíu, þrátt fyrir að hann hafi komið inn í mótið án þess að vera fullkomlega klár.

Real Madrid er með sérhæfða áætlun fyrir Hazard til að koma honum í form sem fyrst áður en nýtt tímabil fer af stað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.