Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   sun 28. ágúst 2022 20:05
Sverrir Örn Einarsson
Jón Þór: Baráttusigur liðsheildarinnar
Jón Þór Hauksson
Jón Þór Hauksson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þessi var mjög sætur. Þetta var baráttusigur liðsheildarinnar og mér fannst við sýna gríðarlegan karakter hérna.“
Sagði Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA um sigur liðsins gegn Keflavík á HS Orkuvellinum í Keflavík fyrr í kvöld þar sem Skagamenn tengdu saman sigra í fyrsta sinn á tímabilinu og hleypa alvöru spennu í botnbaráttu Bestu deildarinnar þegar stutt er í skiptingu hennar.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  1 ÍA

Leikurinn einkenndist fyrst og fremst af harðri baráttu frekar en knattspyrnulegum gæðum. Var það uppleggið að mæta til leiks og láta hart mæta hörðu?

„Við vissum það að þegar þú kemur til Keflavíkur þá þarftu að hafa þessi gildi í lagi. Það kemur engin hingað og fer með sigur af hólmi án þess að vinna virkilega fyrir því og þurfa að leggja hart að sér.“


Sigurinn er líkt og áður segir sá annar sem ÍA sækir í röð en fyrir sigurinn gegn ÍBV á dögunum vann liðið síðast leik gegn Víkingum á Akranesi þann 24.apríl síðastliðinn. Þetta hlýtur að vera léttir fyrir liðið?

„Já þetta var erfitt og langt tímabil sem við fórum í gegnum en strákarnir eiga auðvitað bara hrós skilið að þeir gáfu bara í og það er fyrst og fremst það sem er að gefa núna. Þú kemur ekkert hingað og vinnur svona sigur án þess að trúa á verkefnið og það hafa þeir gert gríðarlega vel. “

Sagði Jón Þór en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner