Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 28. ágúst 2022 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Reguilon fer til Atlético Madríd
Sergio Reguilon
Sergio Reguilon
Mynd: EPA
Spænski vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilon er að ganga til liðs við Atlético Madríd á láni frá Tottenham Hotspur.

Regulion er 25 ára gamall og var keyptur til Tottenham frá Real Madrid fyrir tveimur árum.

Á þessum tveimur árum hefur hann spilað 52 leiki í ensku úrvalsdeildinni, skorað tvö og lagt upp önnur sjö.

Hann hefur ekki komið við sögu í fyrstu fjórum leikjum liðsins á þessari leiktíð þar sem samkeppnin er gríðarleg í vængbakverðinum eftir að Ivan Perisic kom á frjálsri sölu í sumar.

Reguilon er að ganga í raðir Atlético Madrid á Spáni og verður hann á láni út leiktíðina en Atlético mun ekki fá forkaupsrétt á honum.

Atlético er að lána brasilíska vinstri bakvörðinn Renan Lodi til Nottingham Forest og kemur því Reguilon hans stað.
Athugasemdir
banner
banner