Fotbolti.net
28.09.26 - 15:15
Elvar Geir Magnússon

Mancini: Vandamál City en ekki mitt

Roberto Mancini.

Roberto Mancini.

Canon

Mynd: EPA

Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, var á fréttamannafundi spurður út í tvöfalda samninginn sem hann var með þegar hann var stjóri Manchester City.

Greint var frá því á föstudaginn að búið væri að dæma Manchester City sekt í 114 ákæruliðum af 115 vegna fjárhagsbrota.

„Þetta er mál sem varðar mig ekki. Manchester City hefur ekki verið fundið sekt og sú staðreynd að ég hafði tvöfaldan samning er ekki mitt vandamál, heldur líklega þeirra," sagði Mancini.
Mancini stýrði City til enska meistaratitilsins 2012 og til bikarmeistaratitils árið á undan en komið hefur í ljós að hann var með tvöfaldan samning. Þýska blaðið Der Spiegel greindi frá því að City hefði greitt stóran hluta af launum Mancini í gegnum tilhæfulausan ráðgjafasamning. Hann var með samning sem ráðgjafi hjá félaginu Al Jazira í Abú Dabí sem er með sama eignarhald og City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.