Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. nóvember 2021 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Allt öðruvísi en það sem hefur verið í gangi þarna"
Julian Nagelsmann.
Julian Nagelsmann.
Mynd: EPA
Julian Nagelsmann, þjálfari Bayern München, telur að Manchester United muni njóta góðs af því að fá Ralf Rangnick til félagsins.

Nagelsmann, sem er einn efnilegasti þjálfari í heimi, vann áður með Rangnick hjá RB Leipzig.

Rangnick er að taka við United út yfirstandandi tímabil og mun hann svo fara í ráðgjafahlutverk hjá félaginu eftir það. Hann hefur veitt mörgum þjálfurum innblástur og er Nagelsmann einn þeirra.

„Rangnick mun nýtast Manchester United gríðarlega vel, öllu félaginu," sagði Nagelsmann.

„Það hvernig hann vinnur, hvernig hann spilar fótbolta, það er allt öðruvísi en það sem hefur verið í gangi þarna síðustu árin," segir Nagelsmann sem telur að Rangnick komi inn með ferska vinda.
Athugasemdir
banner