Fotbolti.net
29.01.25 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Segir Postecoglou vera rétta manninn

Ange Postecoglou.

Ange Postecoglou.

Canon

Mynd: EPA

Dejan Kulusevski, sem hefur verið besti leikmaður Tottenham á tímabilinu, telur að Ange Postecoglou sé rétti maðurinn fyrir félagið.

Það hefur mikil pressa myndast á Postecoglou eftir hörmulegt gengi að undanförnu.
„Það er ekki mikilvægt hvað fólk segir. Það hefur aldrei verið þannig. Það hefur gengið illa í deildinni en þú þarft að vera með skýran huga. Við erum með tíu heila leikmenn og erum að keppa í fjórum keppnum," sagði Kulusevski.

„Við spilum þrjá leiki á viku með níu til tíu heila aðalliðsleikmenn. Þú verður að horfa á heildarmyndina."

„Við höfum átt leiki þar sem við höfum spilað fullkominn fótbolta. Höfum spilað fallega leiki. Ég tel hann vera rétta manninn, við spilum fyrir hann og viljum vinna fyrir hann."

Kulusevski segist trúa á þann fótbolta sem Postecoglou vill spila og ætlar að berjast fyrir hann.
Dejan Kulusevski.

Dejan Kulusevski.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.