Fotbolti.net
29.01.25 - 13:07
Elvar Geir Magnússon

Valur reynir að fá tvo unga Fylkismenn

Guðmar Gauti Sævarsson.

Guðmar Gauti Sævarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Valur gert tilboð í tvo unga leikmenn Fylkis. Það eru Guðmar Gauti Sævarsson sem verður 17 ára í febrúar og hinn 18 ára Stefán Gísli Stefánsson.

Guðmar á þrettán leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur leikið vel með hinum spennandi U17 hóp. Stefán á sautján unglingalandsleiki og er í U19 landsliðinu.
Arnór Smárason, yfirmaður fótboltamála hjá Val, vill ekki staðfesta að félagið hafi gert tilboð í leikmennina en segir að þeir séu þó klárlega báðir spennandi.

„Stefán og Guðmar eru báðir ungir og efnilegir leikmenn. Við spiluðum við Fylki um helgina og þeir stóðu sig báðir frábærlega í leiknum," segir Arnór.

„Við í Val erum sífellt að vinna að því að búa til betra og eftirsóknarverðara umhverfi fyrir unga leikmenn og þannig horfa til framtíðar. Þessir leikmenn sem þú nefnir eru svo sannarlega framtíðarleikmenn."

Árni Guðna fer yfir málin - „Hef fulla trú á að hann nái að nýta meðbyrinn úr tónlistinni"
TENGT EFNI

Árni Guðna fer yfir málin - „Hef fulla trú á að hann nái að nýta meðbyrinn úr tónlistinni"



Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis, tjáði sig um Guðmar í viðtali við Fótbolta.net í gær.

„Hann er mjög efnilegur, á auðvitað margt eftir ólært og allt það. Hann hefur spilað sérstaklega vel með U17 landsliðinu og er líklega að fara í milliriðla fyrir EM með liðinu. U17 er með hörkulið og spiluðu mjög skemmtilegan fótbolta þegar þeir spiluðu hérna heima í haust. Það kæmi mér ekkert á óvart ef hann yrði eftirsóttur. Maður heyrir einhverjar vangaveltur en það er ekkert komið eitthvað fast varðandi að hann sé að fara eitthvert," sagði Árni.
Stefán Gísli Stefánsson.

Stefán Gísli Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.