Eyþór Wöhler, sem er annar af Húbbabúbba tvíeykinu, kom frá KR í Fylki. Eyþór fagnar 23 ára afmæli sínu í dag.
Fylkir féll úr Bestu deildinni síðasta haust og í Árbænum er stefnan sett á að fara upp úr Lengjudeildinni í sumar. Árni Freyr Guðnason var ráðinn þjálfari liðsins í haust, hann tók við af Rúnari Páli Sigmundssyni.
Það hafa ekki orðið miklar breytingar á leikmannahópnum, tveir nýir leikmenn eru komnir inn og fjórir hafa haldið annað. Þeir Eyþór Aron Wöhler og Bjarki Steinsen Arnarsson komu en þeir Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding), Ómar Björn Stefánsson (ÍA), Guðmundur Rafn Ingason (Stjarnan) og Matthias Præst (KR) héldu annað.
Fylkir endaði í 3. sæti B-riðils í Reykjavíkurmótinu, liðið sigraði Fram en tapaði gegn Þrótti og Val. Fótbolti.net ræddi við Árna þjálfara í dag.
Það hafa ekki orðið miklar breytingar á leikmannahópnum, tveir nýir leikmenn eru komnir inn og fjórir hafa haldið annað. Þeir Eyþór Aron Wöhler og Bjarki Steinsen Arnarsson komu en þeir Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding), Ómar Björn Stefánsson (ÍA), Guðmundur Rafn Ingason (Stjarnan) og Matthias Præst (KR) héldu annað.
Fylkir endaði í 3. sæti B-riðils í Reykjavíkurmótinu, liðið sigraði Fram en tapaði gegn Þrótti og Val. Fótbolti.net ræddi við Árna þjálfara í dag.
„Mér líður vel með hópinn og hvernig undirbúningstímabilið hefur farið af stað, það gengur fínt, hópurinn er góður og ekkert til að kvarta yfir," segir Árni.
Allir heilir?
„Alls ekki, en það er enginn sem verður eitthvað lengi frá."
Vonandi nær Ólafur að upplifa drauminn einn daginn
Á dögunum var fjallað um reynsluför Ólafs Kristófers Helgasonar, markmanns, til Bryne í Noregi. Ekkert varð úr því að hann semdi við norska félagið.
„Við fengum þau svör að hann væri ekki að fara út til þeirra. Það er gott fyrir okkur, en hans draumur er náttúrulega að fara út til að spila og vonandi nær hann því einhvern tímann. En hann er ekki að fara núna."
Eruð þið með mann kláran ef Óli færi út?
„Já, Hilmar (Þór Kjærnested) er flottur markmaður, var varamarkmaður í fyrra. Hann er virkilega seigur. Ég held samt að það sé það stutt eftir af glugganum að Óli sé ekkert að fara fyrir tímabil."
Ekki að leita að neinu eins og er
Hvernig metur þú hópinn, sérðu eitthvað sem þú vilt styrkja á þessum tímapunkti?
„Okkur vantar ekki neitt í rauninni, en ef að kemur virkilega góður leikmaður sem okkur býðst þá skoðum við það að sjálfsögðu. Við erum ekki að leita að neinum leikmönnum."
Full trú á að Eyþór muni ná að nýta meðbyrinn úr tónlistinni
Þið fenguð inn Eyþór, sástu að það vantaði einn framherja í hópinn?
„Ég lít ekki á það hafi vantað framherja, það er nóg af mönnum til að spila frammi, en við litum meira á að okkur vantaði ákveðna karaktera og ákveðnar týpur til að hrista aðeins upp í þessu og styrkja samkeppnina. Eyþór er góður leikmaður, Gummi Tyrfings hefur verið að spila senter og Þóroddur (Víkingsson) líka. Við erum alveg með menn í þessa stöðu, en við vildum fá meiri breidd og styrkja liðið þannig."
Hann sýndi með ÍA að hann getur skorað fullt af mörkum. en þetta hefur ekki alveg smollið síðan. Sérð þú hvað hefur vantað upp á?
„Hann var mjög góður uppi á Skaga, fer svo í Breiðablik og stendur sig vel með HK. Hann gerði svo ágætis hluti með KR þegar hann fékk „run". Það er ekkert hallað á neinn þegar maður segir að það sé örugglega erfiðara að spila með Breiðabliki heldur en HK eða ÍA eða Fylki. Það er erfiðara að komast í gegn í þessum stóru liðum og hann hefur ekki náð því. Hann hefur spilað fullt af leikjum og gert ágætis hluti, þú værir ekkert að spila í Breiðabliki eða KR nema þú gætir eitthvað. Ég hef fulla trú á að hann eigi eftir að vera hrikalega góður í sumar og nái að nýta meðbyrinn úr tónlistinni til þess að spila vel í fótboltanum."
Kæmi ekki á óvart ef hann yrði eftirsóttur
Guðmar Gauti Sævarsson er spennandi leikmaður sem hefur staðið sig vel með U17 landsliðinu. Umtalið í kringum hann er þannig að hann gæti verið á leið erlendis í ár.
„Hann er mjög efnilegur, á auðvitað margt eftir ólært og allt það. Hann hefur spilað sérstaklega vel með U17 landsliðinu og er líklega að fara í milliriðla fyrir EM með liðinu. U17 er með hörkulið og spiluðu mjög skemmtilegan fótbolta þegar þeir spiluðu hérna heima í haust. Það kæmi mér ekkert á óvart ef hann yrði eftirsóttur. Maður heyrir einhverjar vangaveltur en það er ekkert komið eitthvað fast varðandi að hann sé að fara eitthvert."
Klúbburinn vill vera í efstu deild
Árni segir að ekki sé búið að setjast niður og ræða einhver markmið fyrir tímabilið, en ljóst sé þó að stefnan verði sett á að fara upp úr deildinni.
„Liðið féll í fyrra, það eru ekki margir farnir og það eru ekki margir komnir. Klúbburinn vill vera í efstu deild, það gefur því auga leið að það hlýtur að vera einhvers konar markmið. Við þurfum að sjá hvað gerist í Lengjubikarnum og hvernig hin liðin eru. Við erum með gott lið og eigum að reyna við toppsætið, en það er erfitt að fara upp, bara eitt lið sem fer beint upp og svo er það þetta lotterí í umspilinu. Við ætlum okkur að gera góða hluti."
Erfitt að fara frá Fylki
Fylkir hélt í alla reynsluboltanna í leikmannhópnum. Hversu mikilvægt er það?
„Það er mjög mikilvægt. Þetta er fjölskylduklúbbur, menn eru lengi hérna og það er erfitt að fara úr félaginu segja menn sem hafa verið hérna lengi. Það er góð stemning og mönnum líður vel. Það er mikilvægt að halda í ákveðinn hrygg, ákveðinn kjarna og bæta svo ofan á það með öðrum leikmönnum sem setja pressu á þá. Þessir eldri leikmenn, eins og allir hinir, eru ekkert með öruggar 90 mínútur í hverri umferð, þeir þurfa að geta eitthvað. Svo eru yngri leikmenn að koma upp. Við þurfum að púsla þessu saman og þá erum við góðir."
Fékk góð meðmæli úr Krikanum
Bjarki Steinsen, hvað getur Árni sagt um hann?
„Bjarki er uppalinn í Fylki og kom í FH þegar ég var yfirþjálfari þar. Hann kemur á svipuðum tíma og ég er að fara í ÍR á sínum tíma þannig ég þekkti hann ekki þannig, en ég talaði við mitt fólk í Krikanum og það gaf honum góð meðmæli. Hann kom og æfði með okkur og heillaði okkur. Hann getur spilað kant, bakvörð og er duglegur og góður fótboltamaður. Hann á vonandi eftir að standa sig vel. Ég held það sé hollt að hafa samkeppni í þessari deild. Það er mikið af einhverjum baráttuleikjum og það er gott að geta verið með góðan bekk og rúllað mönnum milli leikja svo menn séu ferskir."
„Í fyrra með ÍR þá spiluðum við á mjög mörgum mönnum, held að 23-24 sem byrjuðu leik sem er líklega eitthvað Evrópumet. Það hjálpaði okkur. Ég treysti öllum og ég held það sé mikilvægt að menn finni fyrir því. Þessi íþrótt er bara þannig að ef þú getur eitthvað þá spilar þú, ef þú ert ekki á þínum degi þá spilar einhver annar. Ef allir eru á sömu línu þá gengur vel," segir Árni.
Athugasemdir