Fotbolti.net
29.02.20 - 20:16
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Watford og Liverpool: Lovren skúrkurinn

Einkunnir Watford og Liverpool: Lovren skúrkurinn
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrsta tap Liverpool á úrvalsdeildartímabilinu leit dagsins ljós og var króatíski miðvörðurinn Dejan Lovren skráður sem skúrkurinn í einkunnagjöf Sky Sports.
Lovren fékk aðeins 4 í einkunn fyrir sinn þátt í tapinu á meðan allir liðsfélagar hans fengu 6.

Ismaila Sarr var maður leiksins með 9 í einkunn, enda skoraði hann tvö og lagði eitt upp. Hann komst nálægt því að fullkomna þrennuna sína en inn vildi boltinn ekki.

Troy Deeney, Gerard Deulofeu, Will Hughes og Abdoulaye Doucoure þóttu skara framúr í liði heimamanna.

Watford er í harðri fallbaráttu og situr nú með 27 stig eftir 28 umferðir. Liverpool trónir á toppinum með 22 stiga forystu.

Watford: Foster (7), Femenia (7), Masina (7), Cathcart (7), Kabasele (7), Hughes (8), Capoue (7), Doucoure (8), Sarr (9), Deulofeu (8), Deeney (8)
Varamenn: Chalobah (6), Pussetto (6), Pereyra (6)

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (6), Robertson (6), Lovren (4), Van Dijk (6), Fabinho (6), Wijnaldum (6), Oxlade-Chamberlain (6), Mane (6), Salah (6), Firmino (6)
Varamenn: Minamino (6), Lallana (6), Origi (6)
Einkunnir Watford og Liverpool: Lovren skúrkurinn
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.