Fotbolti.net
29.08.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Berglind Björg: Hann má segja það sem hann vill

Auglýsing
Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Icelandair
„Það er mjög gaman að spila við Þýskaland og við bíðum spenntar,\" sagði Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji íslenska landsliðsins, í viðtali við Fótbolta.net í dag en framundan er risaleikur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli á laugardag.
Horst Hrubesch, þjálfari þýska landsliðsins, sagði í viðtali í vikunni að 3-2 tap gegn Íslandi í fyrra hafi verið undantekning og muni ekki endurtaka sig.

„Hann má segja það sem hann vill. Við spiluðum frábæran leik þá og áttum sigurinn skilinn,\" sagði Berglind.

Berglind hefur raðað inn mörkum með Breiðabliki í sumar. Reiknar hún með að fá sénsinn í byrjunarliðinu á laugardaginn?

„Ég hef ekki hugmynd. Ég reyni bara að standa mig og er alltaf klár þegar kallið kemur.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.