Brasilíska goðsögnin, hægri bakvörðurinn Cafu, fór yfir stóru málin á Fox Sports. Hann var spurður út í besta leikmann í heiminum þegar kæmi að tækni.
„Tæknilega er Neymar besti leikmaður í heiminum," sagði Cafu aðspurður. Hann segir Neymar jafnvel betri en Messi þegar eingöngu er spáð í tæknilegri getu.
„Í dag, tæknilega, stenst enginn Neymar snúning. Ekki einu sinni Messi, ég er samt aðdáandi Messi. Hann er ekki betri en Neymar þegar tæknileg geta er skoðuð."
Neymar er Brasilíumaður eins og Cafu. Cafu lék á sínum tíma 142 landsleiki með Brasilíu og gerði garðinn frægan hjá Roma og Milan á Ítalíu.
Athugasemdir