Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. mars 2021 15:58
Elvar Geir Magnússon
Lewandowski missir af báðum leikjunum gegn PSG
Mynd: Getty Images
Bayern München verður án sóknarmannsins Robert Lewandowski næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla í hné.

Þýskalandsmeistararnir hafa staðfest þetta en Lewandowski mun missa af báðum leikjunum gegn PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þetta er mikið áfall fyrir Bæjara en Lewandowski, sem er 32 ára, meiddist í landsleik með Póllandi.

Hann er einn besti markaskorari heimsins og var valinn leikmaður ársins hjá FIFA á síðasta ári.

Bayern er á toppi þýsku Bundesligunnar með fjögurra stiga forystu á RB Leipzig. Liðin mætast í toppslag á laugardaginn.

Sigurvegarinn úr einvígi Bayern og PSG mun mæta Manchester City eða Borussia Dortmund í undanúrslitum.


Athugasemdir
banner
banner