Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
Murielle: Það er fínt að við erum þær einar sem erum að setja pressu á okkur
Óskar Smári: Það er bara mikil stemning og fjör
Jóhannes Karl: Þetta er skref aftur á bak
Birta Georgs: Fengum hárblásara í hálfleik
Björgvin Karl eftir 6-0 tap: Sumir leikmenn mættu leggja sig meira fram
Nik Chamberlain eftir stórsigur: Verðum að standa undir væntingum
Tindastóll nældi í fyrsta stigið gegn Val - „Stórkostlegur árangur"
Elías Rafn: Sexí varsla frá McTominay
Albert um framtíðina: 15. júní tekur Fiorentina ákvörðun
Gulli vorkenndi markmanni Skota - „Gaf okkur blóð á tennurnar"
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Andri Lucas: Þýðir ekkert annað en að vera bara leiðinlegur til baka
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Prettyboitjokkó og Nadía Atladóttir skrá sig til leiks
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
Gylfi Tryggva: Erum ekki að pæla mikið í töflunni
Willum: Munum sjá Birmingham í úrvalsdeildinni á innan við fimm árum
Logi á leið til Tyrklands - „Ógeðslega spennandi skref“
Hörður Björgvin himinglaður - „Maður sá ekki til sólar og það var mjög dimmt yfir“
Gústi Gylfa: Þeir stjórnuðu þó ég hafi reynt að garga eitthvað bakvið tjöldin
Sigga fannst sínir menn litlir: Hef ekki svör, skil ekki frammistöðuna
   mið 30. maí 2018 11:45
Magnús Már Einarsson
Laugardalsvelli
Birkir Már: HM truflaði frammistöðuna aðeins
Icelandair
Birkir Már Sævarsson í viðtali í dag.
Birkir Már Sævarsson í viðtali í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir í leik með Val.
Birkir í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Birkir Már Sævarsson hefur spilað sinn síðasta leik í bili með Val í Pepsi-deildinni en hann er á leið á HM með íslenska landsliðinu.

„Ég er búinn að halda þessu frekar rólegu þangað til núna. Þegar maður hittir hópinn og byrjar að æfa þá byrjar spennan að byggjast upp," sagði Birkir við Fótbolta.net fyrir
landsliðsæfingu í dag.

Hvernig gekk honum að halda einbeitingu í byrjun sumars í Pepsi-deildinni með HM handan við hornið?

„Mér fannst það ganga ágætlega. Það hafa kannski ekki verið frábærar frammistöður svo kannski var þetta í undirmeðvitundinni að maður væri að fara að spila á HM. Það truflaði frammistöðuna kannski aðeins," sagði Birkir en hræddist hann meiðsli fyrir HM?

„Ég hugsaði ekki um það en með tiliti til viðbeinsbrotsins (síðastliðið haust) var þetta kannski aðeins afast í hausnum, að það gæti komið eitthvað fyrir. Það gæti hafa haft smá áhrif, því miður. Þetta var samt ekki skelfilegt svo þetta slapp fyrir horn."

Eyðilagði ekki hlaupabretti í vetur
Birkir var mikið á hlaupaæfingum í byrjun árs á meðan hann jafnaði sig af viðbeinsbroti. Á EM í Frakklandi kom fram í dagsljósið saga af því þegar Birkir eyðilagði hlaupabretti á Bolungarvík eftir að hafa hlaupið hratt.

„Ég náði ekki að eyðileggja neitt bretti núna. Maður er orðinn gamall og nær ekki sama tempói. Formið er samt í fínu lagi," sagið Birkir léttur í bragði.

Spenntur að mæta Noregi
Ísland mætir Lars Lagerback og lærisveinum hans í norska landsliðinu í vináttuleik á laugardagskvöld.

„Ég kannast við nokkra í norska liðinu og það verður gaman að mæta þeim. Það verður ennþá skemmtilegra ef við náum að vinna. Þeir koma væntanlega 110% í þennan leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner