Kristófer Ingi Kristinson (Breiðablik)
Sóknarmaðurinn Kristófer Ingi Kristinsson hefur svo sannarlega skorað mikilvæg mörk fyrir Breiðablik og hann átti geggjaða innkomu gegn Stjörnunni í Garðabæ. Stjarnan var 1-0 yfir þegar hann kom inn af bekknum á 66. mínútu á föstudaginn.
Þegar flautað var til leiksloka hafði Kristófer skorað glæsilega þrennu og Breiðablik vann 4-1 útisigur.
Þegar flautað var til leiksloka hafði Kristófer skorað glæsilega þrennu og Breiðablik vann 4-1 útisigur.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 4 Breiðablik
Á síðasta tímabili skoraði hann mörk sem tryggðu sigra gegn Stjörnunni og KA og svo stig gegn KR á þessu tímabili. Hann skoraði mikilvæg mörk gegn HK og ÍA og einnig í Evrópuleik. Þó hann eigi ekki fast sæti í byrjunarliðinu þá lagði hann heldur betur sitt á vogarskálarnar þegar Blikar urðu Íslandsmeistarar í fyrra.
„Við vissum bara að við þurfum að vinna leikinn, við þurftum að halda okkur í titilbaráttunni og fáranlega sterkt að klára þetta í dag," sagði Kristófer eftir leik en hann var að skora þrennu gegn félaginu sem hann lék fyrir í yngri flokkum.
Helgi af dýrari gerðinni
Kristófer Ingi útskrifaðist á laugardaginn úr Háskólanum á Akureyri og birti mynd af sér með prófskírteinið á samfélagsmilunn, Kristófer var að klára BSc-próf í viðskiptafræði sem hann tók í fjarnámi.
Ógnvekjandi sýking
Kristófer er 26 ára og hefur verið ansi óheppinn með meiðsli á sínum ferli. Hann fékk slæma blóðsýkingu í ökklann eftir aðgerð í vetur og framtíð hans í boltanum var í hættu.
„Til að byrja með var þetta svolítið ógnvekjandi, maður vissi ekki hvað var að gerast. Maður tók þetta dag frá degi en sem betur fer er þetta búið að jafna sig mjög hratt og vel," sagði Kristófer í viðtali við Fótbolta.net í maí.
Leikmenn umferðarinnar:
12. umferð - Patrick Pedersen (Valur)
11. umferð - Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
10. umferð - Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
9. umferð - Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
8. umferð - Jakob Byström (Fram)
7. umferð - Kjartan Kári Halldórsson (FH)
6. umferð - Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
5. umferð - Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
4. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
3. umferð - Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
2. umferð - Guðmundur Magnússon (Fram)
1. umferð - Rúnar Már Sigurjónsson (ÍA)
Athugasemdir