Fotbolti.net
30.07.18 - 22:00
Orri Rafn Sigurðarson

Bjössi Hreiðars: Vantaði þetta \"killer instinct\"

Auglýsing
Sigurbjörn á hliðarlínunni í sumar.

Sigurbjörn á hliðarlínunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir og Valur gerðu markalaust jafntefli í Egilshöll í kvöld í leik þar sem Valur voru mikið meira með boltann en sköpuðu sér fá opin mark tækifæri.

„Við gerðum það en náðum ekki að skora og brjóta þá á bak aftur þeir börðust eins og brjálæðingar í dag og voru varnarlega mjög sterkir þannig við náðumst þessu ekki í dag.\" Sagði Sigurbjörn Hreiðars, aðstoðarþjálfari Vals, eftir leik.
Þetta var hörkuleikur þar sem bæði lið lögðu allt í sölurnar baráttulega og hlupu útum allan völl. Fylkis liðið varðist vel og Valsmenn virtust ekki finna leiðirnar í gegnum þá.

„Þeir eru að berjast fyrir lífi sínu og hlupu og hlupu en mér fannst við ekki hlaupa minna en þeir. Þetta var bara spurning um smá Killer instinct en við náum því ekki í dag og því fór sem fór.

Valur á risa verkefni gegn Santa Coloma frá Andorra á fimmtudaginn en fyrri leikurinn tapaðist 1-0 í Andorra.

„Við ætlum að fara inn í þann leik og vinna hann við þurfum að gera það ef við ætlum áfram í þessu. Ef við spilum okkar leik eins og menn þá eigum við góðan möguleika á að vinnan þetta lið.\" Sagði Sigurbjörn að lokum

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.