Miðvörðurinn Guðrún Arnardóttir var að skora sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ísland.
Lestu um leikinn: Kýpur 0 - 4 Ísland
Hún skoraði fjórða mark Íslands gegn Kýpur í leik sem er núna í gangi.
„Geggjuð aukaspyrna hjá Karó beint í slána og út í teig þar sem Guðrún kemur og stangar hann inn!" skrifaði Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í beinni textalýsingu frá leiknum.
Guðrún hefur komið sterk inn í landsliðið og spilað mjög vel við hlið Glódísar Perlu Viggósdóttur í hjarta varnarinnar. Guðrún leikur með Rosengård, besta liðinu í Svíþjóð.
Hér að neðan má sjá mark hennar.
Guðrún Arnardóttir skorar sitt fyrsta landsliðsmark eftir aukaspyrnu frá Karólínu Leu og staðan orðin 4-0! pic.twitter.com/eAmY3ERBCM
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 30, 2021
Athugasemdir