Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. nóvember 2022 22:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Szczesny: Þarft smá heppni til að verja frá Messi
Mynd: EPA

Wojciech Szczesny markvörður pólska landsliðsins átti flottann leik gegn Argentínu þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk í síðari hálfleik.


Hann hefði getað fengið á sig mark í þeim fyrri en varði vítaspyrnu frá Messi með glæsibrag.

„Ég hef verið heppinn tvisvar í þessari keppni, þetta er frábært augnablik á ferlinum hjá leikmanni, HM er það stærsta, alveg einstakt," sagði Szczesny eftir leikinn.

Hann var spurður út í vítaspyrnuna.

„Það fer smá vinna í þetta en þú þarft smá heppni til að verja víti frá Messi," sagði Szczesny.

Szczesny varði einnig vítaspyrnu Salem Al Dawsari leikmanni Sádí Arabíu sem gulltryggði Póllandi miðann í 16 liða úrslitin í kvöld með marki í uppbótartíma gegn Mexíkó.


Athugasemdir
banner
banner