Liverpool mun ekki bæta í leikmannahóp sinn áður en glugganum verður lokað klukkan 23:00 í kvöld.
Daily Mail segir að Liverpool ætli að setja alla sína orku í að landa enska landsliðsmiðjumanninum Jude Bellingham frá Borussia Dortmund í sumar.
Daily Mail segir að Liverpool ætli að setja alla sína orku í að landa enska landsliðsmiðjumanninum Jude Bellingham frá Borussia Dortmund í sumar.
Liverpool siglir lygnan sjó um miðja ensku úrvalsdeildina, tíu stigum frá Manchester United í fjórða sætinu.
Sóknarleikmaðurinn Cody Gakpo kom frá PSV Eindhoven í byrjun gluggans en margir stuðningsmenn Liverpool verða svekktir yfir því að ekki bætist við.
Talað hefur verið um þörf á endurnýjun í leikmannahópi liðsins, þá sérstaklega á miðsvæðinu.
Athugasemdir