Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 31. janúar 2023 13:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ólíklegt að Chelsea nái að landa Enzo fyrir gluggalok
Mynd: EPA
Chelsea er að reyna fá Enzo Fernandez frá Benfica. Miðjumaðurinn er með riftunarákvæði í samningi sínum en Chelsea vill ekki borga þá upphæð í einni greiðslu.

Það gefur Benfica færi á því að neita tilboðinu þó að upphæðin sem Chelsea sé tilbúið að greiða sé jafnvel hærra en riftunarupphæðin sem nemur 106 milljónum punda.

Samkvæmt heimildum Guardian er ólíklegt að Chelsea nái að ganga frá kaupunum fyrir gluggalok.

Enzo er 21 árs gamall miðjumaður sem valinn var besti ungi leikmaður HM í Katar. Hann kom til Benfica frá River Plate síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner