Fotbolti.net
31.01.25 - 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

„Real Sociedad uppgötvaði loksins Orra Óskarsson"

Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: Getty Images

„Real Sociedad uppgötvaði loksins Orra Stein Óskarsson," segir blaðamaðurinn Tommaso Cherubini á samfélagsmiðla eftir frammistöðu Orra í gærkvöldi.

Orri var hetja Real Sociedad í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 heimasigri gegn PAOK í Evrópudeildinni.
Orri Steinn: Áminning til allra að við hlustum ekki
TENGT EFNI

Orri Steinn: Áminning til allra að við hlustum ekki

Sigurinn tryggði Sociead sæti í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

„Orri er búinn að skora fimm mörk núna með Sociedad. Imanol (þjálfari liðsins) verður núna að einbeita sér að honum og gefa honum mínútur því þessi strákur, sem fæddur er árið 2004, getur bætt sig mikið," skrifar Cherubini jafnframt.

Orri Steinn var keyptur frá FC Kaupmannahöfn á metfé í lok sumargluggans. Síðasta mark Orra fyrir Sociedad fyrir leikinn í gær kom gegn Plzen snemma í nóvember en hann hefur aðeins byrjað fjóra leiki í spænsku úrvalsdeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.