Fotbolti.net
31.03.21 - 21:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndband: Werner með ótrúlegt klúður í stöðunni 1-1

Sjálfstraustið er ekki mikið hjá þessum kappa.

Sjálfstraustið er ekki mikið hjá þessum kappa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Timo Werner hefur átt erfitt uppdráttar fyrir framan markið á þessu tímabili með Chelsea á Englandi.
Sjálfstraustið er ekki mikið hjá honum þessa stundina og það var augljóst í leik Þýskaland við Norður-Makedóníu í kvöld.

Á 80. mínútu, í stöðunni 1-1, fékk Werner sannkallað dauðafæri til að koma Þýskalandi í 2-1 en hann hitti boltann hörmulega og setti hann fram hjá markinu.

Staðan var 1-1 en Norður-Makedóníu tókst að skora sigurmarkið áður en flautað var af.

Gríðarlega óvænt úrslit í riðli okkar Íslendinga en svona er staðan í riðlinum eftir kvöldið:

1. Armenía 9 stig
2. Norður-Makedónía 6 stig
3. Þýskaland 6 stig
4. Rúmenía 3 stig
5. Ísland 3 stig
6. Liechtenstein 0 stig

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.