Fotbolti.net
31.05.18 - 11:48
Magnús Már Einarsson

Albert Guðmunds: Þarf að fara fyrstur inn í reit

Auglýsing
Albert Guðmundsson ræðir við fréttamenn í dag.

Albert Guðmundsson ræðir við fréttamenn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta er leikur sem við eigum að vinna. Við höfum Argentínu leikinn bakvið eyrað þegar við förum í hann. Vonandi fæ ég einhverjar mínútur til að sýna mig fyrir HM,\" segir Albert Guðmundsson um vináttuleik Íslands og Noregs á laugardaginn.
Albert er yngstur í íslenska landsliðshópnum að þessu sinni. Er hann að fá að finna fyrir því?

„Það er eitthvað sem gerist í búningsklefanum og á vellinum. Ég er fyrstur inn í reit og eitthvað svona,\" sagði Albert léttur en hann segir ekkert stress vera í hópnum fyrir HM.

„Það er ekkert stress. Flestir eru vanir nokkuð stóru sviði, þó kannski ekki heimsmeistaramótinu. Menn eru einbeittir í að standa sig vel.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.