Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
banner
   sun 31. maí 2026 22:30
Sölvi Haraldsson
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við komum mjög sterkt inn í þennan leik, frábær leikur og framimstaða hjá strákunum. Ég er virkilega ánægður með strákana og þetta er standardinn sem við erum búnir að setja, ég er virkilega sáttur.“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga, eftir 5-1 sigur á Val í kvöld á Hlíðarenda.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  5 Víkingur R.

Víkingar voru snemma komnir í stóra forystu í leiknum, er ekki ákveðin kúnst að halda dampi þegar maður kemst svona stórt yfir snemma?

„Það er þessi andlegi partur af leiknum að þegar það er búið að ganga vel er rosalega létt að slaka á. Við erum á mission-i, við erum alltaf að reyna að bæta okkar leik og hækka standardinn, það er að takast mjög vel.“

Óskar Borgþórs skoraði þrennu og lagði upp eitt, það er erfitt að fara fram á eitthvað meira frá honum í kvöld eða hvað?

„Hann stóð sig frábærlega og fékk frábæra aðstoð frá liðsfélögum sínum, hann verður að vera góður við þá því þeir hjálpuðu honum mikið við þetta. Óskar er búinn að vera mjög heitur núna og vinna vel fyrir þessu, hann á þetta skilið.“

Aron fékk högg á höfuðið í seinni hálfleiknum og lá niðri í smá tíma. Þegar maður leit á varamannabekkinn var auðvitað engin varamarkvörður hjá Víkingum. Viktor Örlygur hefði þurft að setja á sig markmannshanskana ef Aron hefði þurft að fara af velli. Hvernig standa markvarðamál Víkinga og hver er staðan á Aroni?

„Ég held að hann hafi fengið högg á hausinn en hann sýndi þvílíkan karakter og harkaði þetta af sér. En ég viðurkenni það að það fór smá um mann. Maður vill helst ekki þurfa að setja Viktor í markið en markvarðamálin ættu að vera búin að skýrast áður en við komum til baka úr fríinu.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner