Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 31. júlí 2021 06:00
Victor Pálsson
Swansea reynir aftur við stjóra MK Dons
Martin sem leikmaður Norwich.
Martin sem leikmaður Norwich.
Mynd: Getty Images
Swansea í ensku Championship-deildinni er nú að leita að stjóra og er orðað við ýmis menn þessa stundina.

Enskir miðlar greina nú frá því að Swansea sé búið að ræða við MK Dons um að fá að ráða stjóra þeirra, Russell Martin.

Þetta er í annað sinn í sumar sem Swansea reynir við Martin en liðið fékk fyrst höfnun.

Steve Cooper yfirgaf lið Swansea fyrr í mánuðinum og var Eiður Smári Guðjohnsen orðaður við liðið um tíma.

Swansea virðist ákveðið í að tryggja sér krafta Martin sem er aðeins 35 ára gamall.

Martin er þekktastur fyrir leikjaferil sinn en hann lék með Norwich frá 2010 til 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner