Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 31. ágúst 2022 09:40
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Fabrizio Romano 
Gluggadagur á morgun - Þetta segir Romano
Fabrizio Romano.
Fabrizio Romano.
Mynd: Getty Images
Amad Diallo.
Amad Diallo.
Mynd: Getty Images
Annað kvöld klukkan 22:00 mun félagaskiptaglugganum vera lokað. Já, Gluggadagurinn er á morgun, fimmtudag. Þá eru jólin hjá íþróttafréttamanninum Fabrizio Romano en enginn er með puttann eins vel á púlsinum og hann þegar kemur að kaupum og sölum í boltanum.

Skoðum hvað hann er að skrifa um, á deginum fyrir sjálfan Gluggadaginn:

- Barcelona gæti lánað bandaríska bakvörðinn Sergino Dest (21) til Villarreal. Leikmaðurinn er með málið í sínum höndum. Dest er einnig orðaður við Manchester United en þá þarf Wan-Bissaka að yfirgefa enska félagið.

- Chelsea er komið vel í veg í viðræðum um kaup á króatíska varnarmanninum Josko Gvardiol (20) frá RB Leipzig. Enska félagið hyggst lána hann aftur til Leipzig út þetta tímabil.

- Miðjumaðurinn Idrissa Gueye (32) er í læknisskoðun en hann er að ganga í raðir Everton að nýju, frá PSG.

- Sunderland er komið langt í viðræðum við Manchester United um að fá vængmanninn Amad Diallo (20) lánaðan út tímabilið. Sunderland er einnig að fá franska miðjumanninn Edouard Michut (19) frá PSG.

- Willy Boly (31) verður nítjándi leikmaðurinn sem Nottingham Forest kaupir í sumar. Hann er á leið í læknisskoðun.

- Everton er að vinna baráttuna um kaup á miðjumanninum James Garner (21) frá Manchester United.

- Leicester er í viðræðum við Atalanta um Jeremie Boga (25) sem getur spilað á miðju og á vængnum.

- Ethan Ampadu (21) er á leið til Ítalíu en Chelsea lánar hann til Spezia út tímabilið.

- Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli (32) hefur ákveðið að fara til FC Sion í Sviss frá Adana Demirspor.

- Frágengið er að franski bakvörðurinn Laywin Kurzawa (29) fari til Fulham frá PSG.

- Olympiacos í Grikklandi er að kaupa Spánverjann Pep Biel (25) frá FC Kaupmannahöfn.


Athugasemdir
banner
banner