Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mið 07. febrúar 2018 21:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hætti til að einbeita sér að því að vera húðflúrari
Hefði getað spilað á Wembley í kvöld
Sean Rigg.
Sean Rigg.
Mynd: Getty Images
Sean Rigg ákvað að hætta að spila fyrir Newport County nokkrum dögum áður en liðið átti að leika gegn úrvalsdeildarliði Tottenham á þjóðarleikvangi Englendinga, Wembley. Ástæðan fyrir því er sú að hann vildi taka upp nýtt starf.

Hinn 29 ára gamli Rigg samdi við Newport á síðasta ári og átti stóran þátt í því að liðið hélt sæti sínu Í D-deildinni á síðasta tímabili.

Hann ákvað hins vegar að yfirgefa Newport á mánudag, aðeins 48 klukkustundum áður en liðið átti að hefja leik á Wembley.

En hvað ætlar Rigg að fara að gera? Hann ætlar að fara að einbeita sér að því að vera húðflúrari (e. tattoo artist).

„Ég sagði við Sean að ég vildi að hann myndi halda áfram. En hann var búinn að taka ákvörðun fyrir löngu. Ég reyndi að fá hann til að skipta um skoðun, en hann var bara búinn að missa ástina á leiknum," sagði Michael Flynn, stjóri Newport, um málið.

Leikur Tottenham og Newport er nú í gangi og er staðan 2-0 fyir Tottenham þegar 70 mínútur eru liðnar.
Athugasemdir
banner
banner