Tom Cleverley ráðinn stjóri Watford (Staðfest)
Watford tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Tom Cleverley sem aðalþjálfara liðsins til frambúðar. Cleverley var bráðabirgðasjóri eftir að Valerien Ismael var látinn fara í mars.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25145 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Watford tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Tom Cleverley sem aðalþjálfara liðsins til frambúðar. Cleverley var bráðabirgðasjóri eftir að Valerien Ismael var látinn fara í mars.
Vestri tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði fengið Johannes Selvén á láni frá danska félaginu OB. Selvén er tvítugur Svíi, hægri kantmaður sem gekk í raðir OB frá Gautaborg síðasta sumar. Hann kom við sögu í níu leikjum og skoraði eitt mark fyrir OB fyrri hluta tímabilsins en hefur ekki verið í leikmannahópnum að undanförnu.
Tveir leikir eru búnir að skipta yfir í Hauka í 2. deild á gluggadeginum í dag. Um er að ræða leikmenn sem eru báðir uppaldir hjá félaginu, Hallur Húni Þorsteinsson og Óliver Steinar Guðmundsson.
Markvörðurinn Beitir Ólafsson hefur fengið félagaskipti frá KR í uppeldisfélagið sitt HK. Beitir er 37 ára og lék einn leik með Gróttu í fyrra. Hann hefur fyrir utan það verið hjá KR frá sumrinu 2017 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2019.
Ólafur Karl Finsen hefur fengið félagaskipti í Val og fær á morgun leikheimild með liðinu. Hann skiptir frá Fylki þar sem hann lék í fyrra.
HK hefur fengið félagaskipti fyrir Eið Gauta Sæbjörnsson frá venslafélaginu Ými. Eiður er 24 ára framherji sem raðað hefur inn mörkum fyrir Ými undanfarin ár. Ýmir hefur leikið í 3. og 4. deild síðustu ár og í 60 deildarleikjm fyrir félagið hefur hann skorað 71 mark. Í vetur skoraði hann svoa 10 mörk í 6 leikjum með Ými í C-deild Lengjubikarsins en liðið er komið í úrslitaleik keppninnar.
Sigurbergur Áki Jörundsson er kominn í Fylki frá Stjörnunni og skrifar undir samning út tímabilið 2027. Beggi, eins og hann er oftast kallaður, var ekki í hópnum í fyrstu þremur leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni. Hann er tvítugur og á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin, þar af 13 fyrir U19.
Dalvík/Reynir tilkynnti í dag um komu spænsks vængmanns til félagsins. Sá heitir Amin Guerrero og spilar með D/R út komandi tímabil. <i>„Amin er 23 ára, snöggur og leikinn leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum. Hann kemur til liðs við okkur frá El Palo á Spáni,"</I> segir í tilkynningu D/R.
Þórir Guðjónsson er genginn í raðir Þróttar og mun spila með liðinu í sumar. Þórir er 33 ára framherji sem leikið hefur með Fram undanfarin ár en rann út á samningi síðasta haust.
Markvörðurinn Þórður Ingason er genginn í raðir KFA, er kominn með félagaskipti til félagsins. Þórður lagði hanskana á hilluna í vetur eftir fimm ár með Víkingi þar sem hann varð fjórum sinnum bikarmeistari og tvisvar sinnum Íslandsmeistari.
Enski sóknarmaðurinn Gary Martin hefur verið lánaður frá Selfossi í Víking Ólafsvík sem leikur í 2. deild. Fótbolti.net sagði frá því fyrr í dag að Gary væri á leiðinni á Ólafsvík og það hefur núna verið staðfest.
Viktor Guðberg Hauksson hefur gengið til liðs við Reyni Sandgerði frá Grindavík á láni út tímabilið. Frá þessu greina Sandgerðingar í kvöld.
Stemningin í Bestu deildinni heldur áfram, dregið var í bikarnum og Emiliano Martínez fékk tvö gul en ekki rautt. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðustu viku.
Ómar Castaldo Einarsson hefur fengið félagaskipti til Víkings Ólafsvíkur og mun spila með liðinu í 2. deild í sumar. Ómar er 23 ára markvörður sem var í leikmannahópi Þórs í fyrra og lék tvo leiki í bikarnum. Hann gerði tveggja ára samning við Þór fyrir síðasta tímabil en í vetur varð ljóst að hann yrði ekki áfram.
Ítalska félagið Udinese hefur ráðið Fabio Cannavaro sem nýjan stjóra út tímabilið. Cannavaro varð heimsmeistari með Ítalíu 2006 og tekur við af Gabriele Cioffi sem var látinn fara eftir fjóra tapleiki í fimm leikjum. Eftir 1-0 tap gegn Verona er Udinese er í sautjánda sæti en liðið er aðeins markatölunni frá fallsvæðinu.
Grindavík hefur fengið portúgalskan vinstri bakvörð í sínar raðir fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Nuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro, eða einfaldlega Nuno Malheiro, er kominn með leikheimild með Grindavík og getur spilað þegar Grindavík mætir ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudaginn.
Helena Ósk Hálfdánardóttir er mætt í FH á láni frá Val og er komin með leikheimild fyrir leik FH gegn Tindastóli. Sá leikur hefst klukkan 17:00 á Sauðárkróksvelli í dag. Helena var ónotaður varamaður hjá Val í gær þegar meistararnir lögðu Þór/KA að velli í opnunarleik Bestu deildarinnar.
<p>Martim Sequeira er genginn til liðs við Hött/Huginn og mun leika með liðinu í 2. deildinni í sumar.</p>
Það er óhætt að segja að neðri deildir enska fótboltapýramídans séu gríðarlega ósáttar eftir tilkynningu frá enska fótboltasambandinu sem segir að endurteknir leikir í FA bikarnum heyri sögunni til.
Rúnar Már Sigurjónsson er genginn til liðs við ÍA en þetta var staðfest á herrakvöldi félagsins sem nú stendur yfir. Rúnar mætti upp á svið. Þessi gríðarlega reynslumikli miðjumaður, fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður til fjölda ára, hefur skrifað undir samning við Skagamenn til loka tímabilsins 2026 en hann er 33 ára. Rúnar Már hefur leikið 32 A-landsleiki og skoraði í þeim 2 mörk. Hann spilaði sem atvinnumaður í Svíþjóð, Sviss, Rúmeníu og Kasakstan. Spilaði hann 271 leik og skoraði í þeim 60 mörk og gaf 42 stoðsendingar. Á þessum tíma vann Rúnar Már deildina í Rúmeníu tvisvar sinnum, deildina í Kasakstan einu sinni og varð meistari meistaranna bæði í Rúmeníu og Kasakstan. Hann spilaði í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar og eru Evrópuleikirnir 29, 9 mörk og 5 stoðsendingar. <i>„Rúnar Már mun koma til með að styrkja lið ÍA verulega og er mikil tilhlökkun að fá að fylgjast með honum næstu ár,"</i> segir í tilkynningu ÍA. ÍA er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Bestu deildinni en liðið mætir Fylki í Akraneshöllinni á sunnudag.