Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. febrúar 2023 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búið að opinbera treyjunúmerið sem Enzo fær
Enzo Fernandez.
Enzo Fernandez.
Mynd: Getty Images
Enzo Fernandez, nýjasti leikmaður Chelsea, er búinn að fá treyjunúmer hjá Lundúnafélaginu.

Miðjumaðurinn mun leika í treyju númer 5 hjá félaginu.

Jorginho, sem gekk í raðir Arsenal á gluggadeginum í gær, er búinn að vera með þetta númer á bakinu síðustu ár. Áður fyrr voru Michael Essien og Kurt Zouma með þetta númer.

Fernandez varð í gær dýrasti leikmaður í sögu enska boltans er Chelsea borgaði fyrir hann 120 milljónir evra. Viðræðurnar tóku langan tíma en það tókst að koma þeim yfir línuna á síðustu stundu áður en glugganum var lokað.

Jack Grealish var dýrasti leikmaður í sögu Englands þegar Manchester City keypti hann frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda, en núna er hinn 22 ára gamli Fernandez búinn að bæta það met.


Athugasemdir
banner
banner
banner