Það er frídagur þennan mánudaginn, annar í hvítasunnu, og ætla mörg knattspyrnulið til að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið sem framundan er.
Það verður Pepsi Max-deildarslagur klukkan 14:00 á Víkingsvelli þegar heimamenn taka á móti Stjörnunni, sem vann 3-0 sigur á KR í síðustu viku. KR-ingar eiga svo leik í kvöld gegn Keflavík í Vesturbæ.
Hér að neðan má skoða alla leiki dagsins
Leikir dagsins:
13:00 Afturelding - Njarðvík (Fagverksvöllurinn)
14:00 ÍBV - KFS (Hásteinsvöllur)
14:00 Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
17:00 FH - Keflavík (Kaplakrikavöllur) - Kvenna
19:00 KR - Keflavík (Meistaravellir)
20:30 Léttir - Ísbjörninn
Veistu um æfingaleiki framundan?
Auk ofangreindra leikja gæti verið um einhverja æfingaleiki að ræða sem við vitum ekki um. Við hvetjum fólk til að senda okkur ábendingar um æfingaleiki sem framundan eru og við munum koma þeim á framfæri morgun þess dags sem leikurinn fer fram. Sendið slíkar ábendingar á [email protected].
Athugasemdir