Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. júlí 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti vissi ekkert hver leikmaður sinn var
Luke Garbutt.
Luke Garbutt.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, kom af fjöllum þegar hann var spurður út í varnarmanninn Luke Garbutt á fréttamannafundi í gær.

Hinn 27 ára gamli Garbutt hefur verið hjá Everton í ellefu ár en hann yfirgaf félagið í vikunni þegar samningur hans rann út.

Garbutt hefur ekkert leikið með aðalliði Everton undanfarin fimm ár en hann var á láni hjá Ipswich í C-deildinni. Ancelotti hafði ekki hugmynd um hver hann er.

„Hver? Ég biðst afsökunar. Ég bjóst ekki við þessari spurningu. Ég veit ekki," sagði Ancelotti aðspurður út í Garbutt.

Garbutt segist sjálfur sjá spaugilegu hliðina á þessu.


Athugasemdir
banner
banner
banner