Holstein Kiel 0-3 Schalke
0-1 Simon Terodde ('2)
0-2 Simon Terodde ('21)
0-3 Marius Bulter ('68)
0-1 Simon Terodde ('2)
0-2 Simon Terodde ('21)
0-3 Marius Bulter ('68)
Schalke heimsótti Holstein Kiel í 2. umferð í næst efstu deild í Þýskalandi í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Schalke og bar fyrirliðabandið. Hólmbert Aron Friðjónsson kom inná sem varamaður í liði Kiel í fyrstu umferðinni en var ekki í hóp í dag.
Schalke var með tveggja marka forystu í hálfleik en Simon Terodde skoraði bæði mörkin. Marius Bulter skoraði þriðja og síðasta mark leiksins þegar um 20 mínútur voru eftir.
Schalke er í 10. sæti deildarinnar með 3 stig eftir tvo leiki. Holstein Kiel er á botninum án stiga.
Athugasemdir