Fotbolti.net
01.09.26 - 20:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sveinn Gísli brotnaði illa - „Missir mjög sennilega af restinni af tímabilinu"

Vinstri höndin fór mjög illa.

Vinstri höndin fór mjög illa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveinn Gísli Þorkelsson, varnarmaður Víkings, varð fyrir því óláni að handleggsbrotna undir lok leiks liðsins gegn KR í kvöld.

Sveinn Gísli meiddist á 88. mínútu og þá var staðan í leiknum 0-0 en lokatölur urðu 1-1 þar sem bæði lið skoruðu í uppbótartímanum. Eftir leikinn í kvöld var hann að bíða eftir sjúkrabíl.

„Höndin á honum er brotin sem er mjög slæmt. Leiðinlegt fyrir Gilla að lenda í þessu, hann var búinn að spila óaðfinnanlegan leik. Hann missir mjög sennilega af restinni af tímabilinu. Það er svekkjandi fyrir hann og missir fyrir okkur að missa gæðamikinn leikmann eins og Gilla," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Víkingur R.
Sveinn Gísli kom inn í byrjunarlið Víkings fyrir leikinn. Hann hafði verið í aukahlutverki síðustu ár þar sem þeir Oliver Ekroth og Gunnar Vatnhamar mynduðu öflugasta miðvarðapar landsins. Gunnar er hins vegar farinn til Danmerkur og líkur á að hlutverk Sveins Gísla myndi stækka verulega við það.

Hann er fæddur 2003, er uppalinn hjá ÍR og kom í Víking fyrir tímabilið 2023.
Sveinn Gísli brotnaði illa - „Missir mjög sennilega af restinni af tímabilinu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveinn Gísli brotnaði illa - „Missir mjög sennilega af restinni af tímabilinu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sveinn Gísli brotnaði illa - „Missir mjög sennilega af restinni af tímabilinu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.