Baráttan verður hörð um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali en Inter og Juventus eru sögð hafa mikinn áhuga á honum.
Tonali, sem er 19 ára gamall, var lykilmaður í liði Brescia á síðustu leiktíð er liðið komst upp í Seríu A en hann vann sér þá inn í sæti í ítalska landsliðinu í kjölfarið.
Leikstíll hans minnir á Andrea Pirlo og Gennaro Ivan Gattuso og er Tonali talinn næsta framtíðarstjarna Ítalíu.
Samkvæmt Tuttosport þá eru það Inter og Juventus sem munu berjast um Tonali sem vill spila áfram á Ítalíu.
Félögin eru tilbúin að kaupa Tonali í janúar en lána hann svo til Brescia út leiktíðina.
Athugasemdir