Fotbolti.net
02.01.23 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum þjálfari Gakpo: Hann er demantur

Fyrrum þjálfari Gakpo: Hann er demantur
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum stjóri Cody Gakpo, nýjasta leikmanns Liverpool segir að hann muni koma öllum á óvart í treyju Liverpool.

Pascal Jansen þjálfaði Gakpo í unglingaliðum PSV en hann stýrir nú aðalliði AZ Alkmaar. 

„Gakpo er demantur. Ég kynntist honum í u15 ára liði PSV og hann skein nú þegar í akademíunni með þessum gríðarlegu gæðum. Hann var ein af stjörnum hollenska landsliðið á HM, aðeins 23 ára. Hann mun koma öllum á óvart hjá Liverpool, hann gæti orðið stórkostlegur framherji," sagði Jansen í samtali við Gazetta Dello Sport.

Gakpo gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Brentford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.