Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   mán 02. mars 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Arteta óttast að engin Meistaradeild hafi áhrif á Arsenal
„Það er engin spurning," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, aðspurður hvort það verði auðveldara fyrir félagið að fá leikmenn í sumar ef Meistaradeildar fótbolti verður í boði á Emirates leikvanginum á næsta tímabili.

Arsenal er átta stigum frá 4. sætinu í úrvalsdeildinni en á leik til góða.

„Allir leikmenn í heiminum vilja spila í Meistaradeildinni. Ef þú talar um þennan möguleika þá eru leikmenn spenntari að koma til félagsins eða framlengja samninga. Það er auðveldara að sannfæra alla og við viljum vera í þessari keppni," sagði Arteta.

„Þetta verður erfitt en þetta er staðan sem við erum í núna. Við erum í þessari stöðu því að við höfum ekki staðið okkur eins vel og önnur félög í topp fjórum hafa gert."

„Það er raunveruleikinn og við þurfum að takast á við hann og taka eins góðar ákvarðanir og við getum."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 25 16 6 3 46 17 +29 54
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 25 14 5 6 35 26 +9 47
4 Man Utd 25 12 8 5 46 36 +10 44
5 Chelsea 25 11 8 6 42 27 +15 41
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Sunderland 25 9 10 6 27 26 +1 37
8 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
9 Fulham 25 10 5 10 34 35 -1 35
10 Everton 25 9 8 8 26 27 -1 35
11 Bournemouth 25 8 10 7 40 43 -3 34
12 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 25 7 8 10 35 35 0 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 25 7 8 10 34 43 -9 29
17 Nott. Forest 25 7 5 13 25 38 -13 26
18 West Ham 25 5 6 14 29 48 -19 21
19 Burnley 25 3 7 15 25 47 -22 16
20 Wolves 25 1 6 18 15 45 -30 9
Athugasemdir
banner
banner